Ég hef ákveðið að koma með aðra tilraun og verða aftur svona semí virk í að blogga.. en ég vill líka fá einhver comment.. annars er ekkert gaman að þessu 
Allavana.. ég hef gert margt síðan síðasta færsla var og í sórum dráttum er það:
* Fór til Spánar með Lilju og Auði í tvær vikur í júlí, allgjör snilldarferð!! 
* Var á Akureyri í ágúst að vinna...
* Flutti suður í lok Ágúst til að fara í skólann, annan bekk í þjóninum í MK...
* Skólinn er búin í byrjun des og þá kem ég aftur norður 
* Bý í Miðtúni í 105 rvk hjá Ruth og Gissur, vinafólki mömmu og pabba.. allveg frábært það 
* Fór til Tyrklands í september með M&P, Óla og Eydísi, and Stebbz and Jane.. Allgjör Snilld... Mamma bauð okkur systkynunum í viku þar hún átti 50 afmæli, í staðinn fyrir að halda uppá það.. 
* Er að vinna á Silfur á Hótel Borg með skólanum.. það er bara svaka fínt...
Þetta er svona það helsta...
Annars er ég náttúrulega samkvæm sjálfri mér.. frekar seinheppin
ákvað að kíkja uppá slysó á fimmtudagskvöldið.. tókst að skera mig svona skemmtilega á kristalasi sem ég var að pússa í vinnunni... Læknirinn er nýji besti vinnur minn þar sem grát bað hann um að sprauta mig ekki svo hann límdi þetta bara saman
Lilju minni hefur nú tekist að skera sig tvistvar á glasi í vinnunni, geri aðrir betur 
Er að hugsa um að koma norður eina helgi í Nóvember, helgina 9-11... Auglýsi hér með eftir einhverjum til að keyra með mér fimmtudaginn 8 nóv og keyra heim á sunnudagskvöldi eða mánudagsmorgni.. miklu ódýrara og skemmtilegra ef það eru fleiri í bílnum... 
ég læt þetta duga í bili.
Kem með aðra færslu fljótlega...